Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 14846:2008 | Járnvara í byggingar - Lásar og læsingar - Raflæsingar og slúttjárn -Kröfur og prófunaraðferðir | Dyr, gluggar, gluggahlerar og járnvara í byggingar og ekki berandi útveggir (CEN/TC 33) | 1.9.2011 | 1.9.2012 |
ÍST EN 14889-2:2006 | Trefjar í steinsteypu - Hluti 2: Fjölliðutrefjar - Skilgreining, eiginleikar og samræmi | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.6.2007 | 1.6.2008 |
ÍST EN 14889-1:2006 | Trefjar í steinsteypu - Hluti 1: Stáltrefjar - Skilgreining, eiginleikar og samræmi | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.6.2007 | 1.6.2008 |
ÍST EN 14891:2012 | Ógegndræp efni sem lögð eru í fljótandi formi til nota undir keramikflísar sem festar eru með límefnum - Kröfur, prófunaraðferðir, samræmismat, flokkun og merking | Keramikflísar (CEN/TC 67) | 1.3.2013 | 1.3.2014 |
ÍST EN 14891:2012/AC:2012 | Ógegndræp efni sem lögð eru í fljótandi formi til nota undir keramikflísar sem festar eru með límefnum - Kröfur, prófunaraðferðir, samræmismat, flokkun og merking | Keramikflísar (CEN/TC 67) | 1.3.2013 | 1.3.2013 |
ÍST EN 14904:2006 | Yfirborðsefni á íþróttasvæði – Gólfefni til fjölíþróttanota – Eiginleikar | Yfirborðsefni á íþróttasvæði (CEN/TC 217) | 1.2.2007 | 1.2.2008 |
ÍST EN 14909:2012 | Sveigjanleg lög til vatnsþéttingar – Rakaþétt lög úr plasti og gúmmíi – Skilgreiningar og eiginleikar | Sveigjanleg lög til vatnsþéttingar (CEN/TC 254) | 1.3.2013 | 7.7.2013 |
ÍST EN 14915:2013 | Gegnheill viðarpanell og klæðningar – Eiginleikar, samræmismat og merking | Sívalt og sagað timbur (CEN/TC 175) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 14933:2007 | Léttar fylli- og einangrunarvörur til nota við mannvirkjagerð - Verksmiðjuframleiddar vörur úr þöndu pólýstýreni (EPS) - Eiginleikar | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 1.7.2008 | 1.7.2009 |
ÍST EN 14934:2007 | Léttar fylli- og einangrunarvörur til nota við mannvirkjagerð - Verksmiðjuframleiddar vörur úr þrýstimótuðu pólýstýrenfrauði (XPS) - Eiginleikar | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 1.7.2008 | 1.7.2009 |
ÍST EN 14963:2006 | Þakefni – Samfelld ofanljós úr plasti með eða án burðarramma – Flokkun, kröfur og prófunaraðferðir | Ósamfellt þakefni og efni fyrir til veggklæðningar (CEN/TC 128) | 1.8.2009 | 1.8.2012 |
ÍST EN 14964:2006 | Stíf undirlög undir þakklæðningar – Skilgreiningar og eiginleikar | Ósamfellt þakefni og efni fyrir til veggklæðningar (CEN/TC 128) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14967:2006 | Sveigjanleg lög til vatnsþéttingar – Rakaþétt biklög – Skilgreiningar og eiginleikar | Sveigjanleg lög til vatnsþéttingar (CEN/TC 254) | 1.3.2007 | 1.3.2008 |
ÍST EN 14989-2:2007 | Reykháfar og loftrásarkerfi fyrir rýmiseinangruð tæki - Kröfur og prófunaraðferðir - Hluti 2: Reykrör og loftrásarkerfi fyrir stök rýmiseinangruð tæki | Reykháfar (CEN/TC 166) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 14989-1:2007 | Reykháfar – Kröfur og prófunaraðferðir fyrir málmreykháfa og loftrásir úr hvers kyns efnum fyrir lokaða rýmishitara – Hluti 1: Lóðréttar hettur fyrir búnað af gerðinni C6 | Reykháfar (CEN/TC 166) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14991:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Undirstöðueiningar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14992:2007+A1:2012 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Veggeiningar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.4.2013 | 1.7.2013 |
ÍST EN 15037-1:2008 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum - Hluti 1: Bitar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 15037-4:2010+A1:2013 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum – Hluti 4: Þvereiningar úr þöndu pólýstýreni | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 15037-2:2009+A1:2011 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 2: Þvereiningar úr steinsteypu | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.12.2011 | 1.12.2012 |