Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 15382:2013 | Þéttilög úr blöndu af jarðvegi og gerviefnum – Eiginleikar sem krafist er við notkun í samgöngumannvirkjum | Þéttilög (CEN/TC 189) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 15435:2008 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Steypumótablokkir úr venjulegri og léttri steinsteypu - Vörueiginleikar og nothæfi | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.2.2009 | 1.2.2010 |
ÍST EN 15497:2014 | Gegnheilt fingurskeytt burðartimbur – Nothæfiskröfur og lágmarksframleiðslukröfur | Timburvirki (CEN/TC 124) | 10.10.2014 | 10.10.2015 |
ÍST EN 15498:2008 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Steypumótablokkir úr spónasteypu - Vörueiginleikar og nothæfi | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.2.2009 | 1.2.2010 |
ÍST EN 15501:2013 | Varmaeinangrunarvörur fyrir búnað í byggingar og til iðnaðarnota – Verksmiðjuframleiddar vörur úr þöndum perlusteini (EF) og þöndu vermikúlíti (EV) - Eiginleikar | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 15599-1:2010 | Varmaeinangrunarvörur fyrir búnað í byggingar og til iðnaðarnota – Varmaeinangrun sem mótuð er á notkunarstað úr þöndum perlusteini (EP) – Hluti 1: Eiginleikar mótaðs og kurlaðs efnis fyrir notkun | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 1.4.2011 | 1.4.2012 |
ÍST EN 15600-1:2010 | Varmaeinangrunarvörur fyrir búnað í byggingar og til iðnaðarnota– Varmaeinangrun sem mótuð er á notkunarstað úr vermíkúlítflögum (EV) – Hluti 1: Eiginleikar mótaðs og ómótaðs efnis fyrir notkun | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 1.4.2011 | 1.4.2012 |
ÍST EN 15650:2010 | Loftræsting bygginga – Brunalokur sem festar eru í stokka | Loftræsting bygginga (CEN/TC 156) | 1.9.2011 | 1.9.2012 |
ÍST EN 15651-1:2012 | Þéttiefni fyrir samskeyti (ekki berandi) í byggingum og göngusvæðum - Hluti 1: Þéttiefni fyrir ytra byrði húsa | Þéttiefni fyrir samskeyti í byggingum (CEN/TC 349) | 1.7.2013 | 1.7.2014 |
ÍST EN 15651-3:2012 | Þéttiefni fyrir samskeyti (ekki berandi) í byggingum og göngusvæðum - Hluti 3: Þéttiefni fyrir samskeyti hreinlætisbúnaðar | Þéttiefni fyrir samskeyti í byggingum (CEN/TC 349) | 1.7.2013 | 1.7.2014 |
ÍST EN 15651-2:2012 | Þéttiefni fyrir samskeyti (ekki berandi) í byggingum og göngusvæðum - Hluti 2: Þéttiefni til glerjunar | Þéttiefni fyrir samskeyti í byggingum (CEN/TC 349) | 1.7.2013 | 1.7.2014 |
ÍST EN 15651-4:2012 | Þéttiefni fyrir samskeyti (ekki berandi) í byggingum og göngusvæðum - Hluti 4: Þéttiefni til nota í göngusvæðum | Þéttiefni fyrir samskeyti í byggingum (CEN/TC 349) | 1.7.2013 | 1.7.2014 |
ÍST EN 15681-2:2017 | Gler í byggingar - Almennar glervörur úr álsilíkati - Hluti 2: Samræmismat / vörustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 11.8.2017 | 11.8.2018 |
ÍST EN 15682-2:2013 | Gler í byggingar – Hitahert og gegnhitað öryggisgler úr jarðalkalínatríumsilíkati – Hluti 2: Samræmismat/vörustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 15683-2:2013 | Gler í byggingar – Hitahert prófílgler úr natríumkalksilíkati – Hluti 2: Samræmismat/vörustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 15732:2012 | Léttar fylli- og varmaeinangrunarvörur til nota við mannvirkjagerð (CEA) - Létt fylliefni (LWA) úr þöndum leir | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 1.8.2013 | 1.8.2014 |
ÍST EN 15743:2010+A1:2015 | Súlfatríkt háofnagjallssement – Samsetning, eiginleikar og samræmiskröfur | Sement og byggingarlím (CEN/TC 51) | 13.11.2015 | 13.11.2016 |
ÍST EN 15814:2011+A2:2014 | Pólymerbreytt þykk bikklæðning til þéttingar gegn vatnsleka - Skilgreiningar og kröfur | (CEN/TC 361 ) | 10.7.2015 | 10.7.2016 |
ÍST EN 15821:2010 | Sánaofnar með fleiri en einum brennara sem kyntir eru með föstu eldsneyti - Kröfur og prófunaraðferðir | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 1.7.2011 | 1.7.2012 |
ÍST EN 15824:2017 | Kröfur til utan- og innanhúss múrhúðunarefna með lífrænum bindiefnum | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 9.3.2018 | 9.3.2020 |