Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 28 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 1168:2005+A3:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - HolplöturForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.7.20121.7.2013
ÍST EN 12737:2004+A1:2007Forsteyptar steinsteypuvörur - Rimlagólf fyrir búféForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 12794:2005+A1:2007/AC:2008Forsteyptar steinsteypuvörur - GrundunarstaurarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.8.20091.8.2009
ÍST EN 12794:2005+A1:2007Forsteyptar steinsteypuvörur - GrundunarstaurarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.2.20081.2.2009
ÍST EN 12839:2012Forsteyptar einingar úr steinsteypu - Einingar í girðingarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.10.20121.10.2013
ÍST EN 12843:2004Forsteyptar steinsteypuvörur - Möstur og staurarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.9.20051.9.2007
ÍST EN 13224:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - RifjaplöturForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.8.20121.8.2013
ÍST EN 13225:2013Forsteyptar steinsteypuvörur - Bita- og súlueiningar í byggingarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 8.8.20148.8.2015
ÍST EN 13693:2004+A1:2009Forsteyptar steinsteypuvörur - Sérstakar þakeiningarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.5.20101.5.2011
ÍST EN 13747:2005+A2:2010Forsteyptar steinsteypuvörur - Forsteyptar gólfaplöturForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20111.1.2011
ÍST EN 13748-1:2004/AC:2005Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhússForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.6.20056.1.2005
ÍST EN 13748-2:2004Terrazzoflísar - 2. hluti: Terrazzoflísar til nota utanhússForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.4.20051.4.2006
ÍST EN 13748-1:2004Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhússForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.6.200510.1.2006
ÍST EN 13748-1:2004/A1:2005Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhússForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.4.20061.10.2006
ÍST EN 13978-1:2005Forsteyptar steinsteypuvörur - Forsteyptir bílskúrar - 1. hluti: Kröfur varðandi benta bílskúra, heilsteypta eða úr steyptum einingum í rýmisstærðForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.3.20061.3.2008
ÍST EN 14843:2007Forsteyptar steinsteypuvörur - StigarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20081.1.2009
ÍST EN 14844:2006+A2:2011Forsteyptar steinsteypuvörur – HolkassarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.9.20121.9.2013
ÍST EN 14991:2007Forsteyptar steinsteypuvörur – UndirstöðueiningarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20081.1.2009
ÍST EN 14992:2007+A1:2012Forsteyptar steinsteypuvörur – VeggeiningarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.4.20131.7.2013
ÍST EN 15037-4:2010+A1:2013Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum – Hluti 4: Þvereiningar úr þöndu pólýstýreniForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 8.8.20148.8.2015