Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 28 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 15037-2:2009+A1:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 2: Þvereiningar úr steinsteypuForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20111.12.2012
ÍST EN 15037-3:2009+A1:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 3: Þvereiningar úr leirForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20111.12.2012
ÍST EN 15037-5:2013Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 5: Léttar þvereiningar fyrir einföld mótakerfiForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 8.8.20148.8.2015
ÍST EN 15037-1:2008Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum - Hluti 1: BitarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20101.1.2011
ÍST EN 15050:2007+A1:2012Forsteyptar steinsteypuvörur - BrúarefniForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20121.12.2012
ÍST EN 15258:2008Forsteyptar steinsteypuvörur -StoðveggeiningarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20101.1.2011
ÍST EN 15435:2008Forsteyptar steinsteypuvörur - Steypumótablokkir úr venjulegri og léttri steinsteypu - Vörueiginleikar og nothæfiForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.2.20091.2.2010
ÍST EN 15498:2008Forsteyptar steinsteypuvörur - Steypumótablokkir úr spónasteypu - Vörueiginleikar og nothæfiForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.2.20091.2.2010