Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 16034:2014 | Dyrasamstæður fyrir fótgangandi umferð, iðnaðar-, verslunar- og bílageymsludyr og gluggar - Vörustaðall, notkunareiginleikar - Brunamótstaða- og/eða reykvarnarþéttleiki | Dyr, gluggar, gluggahlerar og járnvara í byggingar og ekki berandi útveggir (CEN/TC 33) | 1.11.2016 | 1.11.2019 |
ÍST EN 16069:2012+A1:2015 | Varmaeinangrun fyrir byggingar – Verksmiðjuframleiddar vörur úr pólýetýlenfrauði (PEF) – Eiginleikar | Varmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) | 10.7.2015 | 10.7.2016 |
ÍST EN 16153:2013+A1:2015 | Ljóshleypin, flöt, margra laga pólýkarbonatklæðning til nota að innan eða utan fyrir þök, veggi og loft - Kröfur og prófunaraðferðir | Ósamfellt þakefni og efni fyrir til veggklæðningar (CEN/TC 128) | 10.7.2015 | 10.7.2016 |
ÍST EN 16240:2013 | Ljóshleypin, flöt, ólagskipt pólýkarbonatklæðning til nota á innri og ytri þök, veggi og loft - Kröfur og prófunaraðferðir | Ósamfellt þakefni og efni fyrir til veggklæðningar (CEN/TC 128) | 10.3.2017 | 10.3.2018 |
ÍST EN 16510-2-1:2022 | Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-1: Rýmishitarar | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 9.11.2023 | 9.11.2025 |
ÍST EN 16510-2-2:2022 | Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-2: Innfelld tæki, þ.m.t. opin eldstæði | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 9.11.2023 | 9.11.2025 |
ÍST EN 16510-2-3:2022 | Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-3: Eldavélar | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 9.11.2023 | 9.11.2025 |
ÍST EN 16510-2-4:2022 | Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-4: Frístandandi katlar - Nafnvarmagjöf allt að 50 kW | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 9.11.2023 | 9.11.2025 |
ÍST EN 16510-2-6:2022 | Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-6: Rýmishitarar sem mataðir eru vélrænt með viðarkurli, innfeld tæki og eldavélar | Tæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) | 9.11.2023 | 9.11.2025 |
ÍST EN 50575:2014/A1:2016 | Afl- stýri- og boðskiptastrengir - Strengir til almennra nota í byggingarmannvirkjum sem lúta kröfum varðandi viðbrögð við eldi | Strengir fyrir rafmagn (CLC/TC 20) | 10.6.2016 | 7.1.2017 |
ÍST EN 50575:2014 | Afl- stýri- og boðskiptastrengir - Strengir til almennra nota í byggingarmannvirkjum sem lúta kröfum varðandi viðbrögð við eldi | Strengir fyrir rafmagn (CLC/TC 20) | 10.6.2016 | 7.1.2017 |