Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 16 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 450-1:2012Svifaska í steinsteypu - Hluti 1: Skilgreining, eiginleikar og samræmisskilyrðiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.5.20131.5.2014
ÍST EN 523:2003Stálkápur fyrir forspennustrengi - Íðorð, kröfur og gæðaeftirlitSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.6.20041.6.2005
ÍST EN 934-5:2007Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 5: Íblöndunarefni til nota í sprautusteypu - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merkingSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 934-3:2009+A1:2012Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 3: Íblöndunarefni í múr til nota í múrvirki - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merkingSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.3.20131.9.2013
ÍST EN 934-4:2009Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 4: Íblöndunarefni í þunnfljótandi múr til nota með forspennustrengjum - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merkingSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.3.20101.3.2011
ÍST EN 934-2:2009+A1:2012Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 2: Íblöndunarefni í steinsteypu - Skilgreiningar, kröfur, samræmisauðkenningar og merkingarSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.3.20131.9.2013
ÍST EN 1504-7:2006Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum – Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi – Hluti 7: Tæringarvarnir bendingarSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.6.20071.1.2009
ÍST EN 1504-3:2005Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum - Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi - 3. hluti: Viðgerðir á steinsteypu með og án burðarhlutverksSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.10.20061.1.2009
ÍST EN 1504-2:2004Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum - Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi - 2. hluti: Yfirborðsverndarkerfi fyrir steinsteypuSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.9.20051.1.2009
ÍST EN 1504-4:2004Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum - Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi - 4. hluti: Lím til byggingarnotaSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.9.20051.1.2009
ÍST EN 1504-5:2004Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum - Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi - Hluti 5: Innsprautun í steinsteypuvirkiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.10.20051.1.2009
ÍST EN 1504-6:2006Vörur og kerfi til verndar og viðgerðar á steinsteypuvirkjum – Skilgreiningar, kröfur, gæðaeftirlit og mat á samræmi – Hluti 6: Festing bendistálsSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.6.20071.1.2009
ÍST EN 13263-1:2005+A1:2009Kísilryk í steinsteypu - Hluti 1: Skilgreiningar, kröfur og samræmisskilyrðiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.1.20101.1.2011
ÍST EN 14889-1:2006Trefjar í steinsteypu - Hluti 1: Stáltrefjar - Skilgreining, eiginleikar og samræmiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.6.20071.6.2008
ÍST EN 14889-2:2006Trefjar í steinsteypu - Hluti 2: Fjölliðutrefjar - Skilgreining, eiginleikar og samræmiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.6.20071.6.2008
ÍST EN 15167-1:2006Malað, kornað brennsluofnagjall til nota í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 1: Skilgreiningar, eiginleikar og samræmisskilyrðiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.1.20081.1.2009