Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 572 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 13986:2004+A1:2015Trétrefjaplötur til nota í byggingum - Eiginleikar, samræmismat og merkingTrefjaplötur (CEN/TC 112) 13.11.201513.11.2016
ÍST EN 14016-1:2004Bindiefni í magnesítílagnir - Brennd magnesínefni og magnesínklóríð - 1. hluti: Skilgreiningar, kröfurGólfílögn og efni í gólfílögn (CEN/TC 303) 1.12.20041.12.2005
ÍST EN 14023:2010Jarðbik og jarðbiksbindiefni - Almennar kröfur um fjölliðublandað jarðbikJarðbiksbindiefni (CEN/TC 336) 1.1.20111.1.2012
ÍST EN 14037-1:2016Geislahitunarplötur í loft fyrir vatn undir 120°C - Hluti 1: Tæknilýsing og kröfurUpphitunartæki án sambyggðs hitagjafa (CEN/TC 130) 10.3.201710.3.2018
ÍST EN 14041:2004/AC:2006Fjaðrandi gólfefni úr textíl- og dúkefnum - Grundvallar eiginleikarFjaðrandi gólfefni úr textíl- og dúkefnum (CEN/TC 134) 1.1.20071.1.2007
ÍST EN 14041:2004Fjaðrandi gólfefni úr textíl- og dúkefnum - Grundvallar eiginleikarFjaðrandi gólfefni úr textíl- og dúkefnum (CEN/TC 134) 1.1.20061.1.2007
ÍST EN 14055:2010Vatnskassar fyrir salernis- og þvagskálarHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.9.20111.9.2012
ÍST EN 14063-1:2004/AC:2006Varmaeinangrun fyrir byggingar - Varmaeinangrun sem mótuð er á notkunarstað úr léttum fylliefnum úr þöndum leir - 1. hluti: Eiginleikar ómótaðs efnis fyrir uppsetninguVarmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) 1.1.20081.1.2008
ÍST EN 14063-1:2004Varmaeinangrun fyrir byggingar - Varmaeinangrun sem mótuð er á notkunarstað úr léttum fylliefnum úr þöndum leir - 1. hluti: Eiginleikar ómótaðs efnis fyrir uppsetninguVarmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) 1.6.20056.1.2006
ÍST EN 14064-1:2010Varmaeinangrun fyrir byggingar - Varmaeinangrun sem mótuð er á notkunarstað úr lausri glerull eða steinull (MW) - Hluti 1: Eiginleikar lausullar fyrir uppsetninguVarmaeinangrun, efni og vara (CEN/TC 88) 1.12.20101.12.2011
ÍST EN 14080:2013Timburvirki - Límtré og gegnheilt límtréTimburvirki (CEN/TC 124) 8.8.20148.8.2015
ÍST EN 14081-1:2005+A1:2011Timburvirki - Styrkleikaflokkað timbur í burðarvirki með rétthyrndu þversniði - Hluti 1: Almennar kröfurTimburvirki (CEN/TC 124) 1.10.201131.12.2011
ÍST EN 14178-2:2004Gler í byggingar - Almennar jarðalkalínatríumsilíkatvörur - 2. hluti: Samræmismat/VörustaðallGler í byggingar (CEN/TC 129) 1.9.20051.9.2006
ÍST EN 14179-2:2005Gler í byggingar - Hitahert og gegnhitað öryggisgler úr natríumkalksilíkati - 2. hluti: Samræmismat/vörustaðallGler í byggingar (CEN/TC 129) 1.3.20061.3.2007
ÍST EN 14188-2:2004Fylli- og þéttiefni í samskeyti - 2. hluti: Kröfur fyrir óhituð þéttiefniEfni til vegagerðar (CEN/TC 227) 1.10.20051.1.2007
ÍST EN 14188-3:2006Fylli- og þéttiefni í samskeyti – Hluti 3: Eiginleikar tilbúinna fúguþéttingaEfni til vegagerðar (CEN/TC 227) 1.11.20061.11.2007
ÍST EN 14188-1:2004Fylli- og þéttiefni í samskeyti - 1. hluti: Kröfur fyrir hituð þéttiefniEfni til vegagerðar (CEN/TC 227) 1.7.20051.1.2007
ÍST EN 14190:2014Sérunnar gifsplötur - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðirGifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) 13.2.201513.2.2016
ÍST EN 14195:2005/AC:2006Málmgrindarhlutar fyrir gifsplötukerfi - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðirGifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) 1.1.20071.1.2007
ÍST EN 14195:2005Málmgrindarhlutar fyrir gifsplötukerfi - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðirGifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) 1.1.20061.1.2007