Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 12 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 997:2012Salernisskálar og salerni með vatnslásHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.12.20121.6.2013
ÍST EN 997:2012/AC:2012Salernisskálar og salerni með vatnslásHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.3.20131.3.2013
ÍST EN 12764:2004+A1:2008Hreinlætistæki - Tæknilýsing fyrir nuddpottaHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 13310:2003Eldhúsvaskar - Kröfur og prófunaraðferðirHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.2.20041.2.2006
ÍST EN 13407:2006Vegghengdar þvagskálar - Kröfur og prófunaraðferðirHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.1.20081.1.2009
ÍST EN 14055:2010Vatnskassar fyrir salernis- og þvagskálarHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.9.20111.9.2012
ÍST EN 14296:2005Hreinlætistæki - ÞvottarennurHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.3.20061.3.2008
ÍST EN 14428:2004+A1:2008Sturtuskilrúm - Kröfur og prófunaraðferðirHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 14516:2006+A1:2010Baðkör til heimilisnotaHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.5.20111.5.2012
ÍST EN 14527:2006+A1:2010Sturtubotnar til heimilisnotaHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.5.20111.5.2012
ÍST EN 14528:2007Skolskálar - Kröfur og prófunaraðferðirHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.1.20081.1.2009
ÍST EN 14688:2006Hreinlætistæki – Handlaugar – Kröfur og prófunaraðferðirHreinlætistæki (CEN/TC 163) 1.1.20081.1.2009