Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 12566-4:2007 | Skólplagnir fyrir lítil kerfi fyrir allt að 50 íbúa - Hluti 4: Rotþrær sem settar eru saman á vettvangi úr forsmíðuðum einingum | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12566-1:2000 | Skólphreinsibúnaður fyrir lítil kerfi fyrir allt að 50 íbúa - Hluti 1: Verksmiðjuframleiddar rotþrær | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.12.2004 | 1.6.2005 |
ÍST EN 12566-3:2005+A2:2013 | Skólphreinsibúnaður fyrir lítil kerfi fyrir allt að 50 íbúa - Hluti 3: Samsettar og/eða ósamsettar skólphreinsistöðvar fyrir íbúabyggð | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 12566-6:2013 | Skólphreinsibúnaður fyrir lítil kerfi fyrir allt að 50 íbúa - Hluti 6: Tilbúnar hreinsieiningar fyrir skólp úr rotþróm | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 12566-7:2013 | Skólphreinsibúnaður fyrir lítil kerfi fyrir allt að 50 íbúa - Hluti 7: Einingar fyrir lokahreinsun | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 12591:2009 | Jarðbik og jarðbiksbindiefni – Eiginleikar jarðbiks til nota í slitlög | Jarðbiksbindiefni (CEN/TC 336) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 12602:2016 | Forsteyptir styrktir byggingarhlutar úr hita- og þrýstihertri frauðsteypu | Forsteyptir bentir byggingarhlutar með opnum léttum fylliefnum (CEN/TC 177) | 10.3.2017 | 10.3.2018 |
ÍST EN 12620:2002+A1:2008 | Fylliefni í steinsteypu | Fylliefni (CEN/TC 154) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12676-1:2000/ A1:2003 | Ljósskermar til nota á vegum - 1. hluti: Kröfur og eiginleikar | Búnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) | 1.2.2004 | 1.2.2006 |
ÍST EN 12676-1:2000 | Anti-glare systems for roads - Part 1: Performance and characteristics | Búnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) | 1.2.2004 | 1.2.2006 |
ÍST EN 12737:2004+A1:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Rimlagólf fyrir búfé | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12764:2004+A1:2008 | Hreinlætistæki - Tæknilýsing fyrir nuddpotta | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12794:2005+A1:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Grundunarstaurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.2.2008 | 1.2.2009 |
ÍST EN 12794:2005+A1:2007/AC:2008 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Grundunarstaurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.8.2009 | 1.8.2009 |
ÍST EN 12839:2012 | Forsteyptar einingar úr steinsteypu - Einingar í girðingar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.10.2012 | 1.10.2013 |
ÍST EN 12843:2004 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Möstur og staurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.9.2005 | 1.9.2007 |
ÍST EN 12859:2011 | Gifsblokkir - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðir | Gifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) | 1.12.2011 | 1.12.2012 |
ÍST EN 12860:2001 | Gifslím fyrir gifsblokkir - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðir | Gifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) | 1.4.2002 | 1.4.2003 |
ÍST EN 12860:2001/AC:2002 | Gifslím fyrir gifsblokkir - Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðir | Gifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) | 1.1.2010 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12878:2005 | Litarefni fyrir byggingarefni úr sementi og / eða kalki - Eiginleikar og prófunaraðferðir | Litarefni og íblöndunarefni (CEN/TC 298) | 1.3.2006 | 1.3.2007 |