Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 15 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 1317-5:2007+A2:2012Öryggisbúnaður vega - Hluti 5: Vörukröfur og samræmismat fyrir vegahindranirBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.1.20131.1.2013
ÍST EN 1317-5:2007+A2:2012/AC:2012Öryggisbúnaður vega - Hluti 5: Vörukröfur og samræmismat fyrir vegahindranirBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.3.20131.3.2013
ÍST EN 1423:2012/AC:2013Efni til vegmerkinga - Sáldurefni - Glerperlur, viðnámsaukandi korn og blöndur af hvoru tveggjaBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.7.20131.7.2013
ÍST EN 1423:2012Efni til vegmerkinga - Sáldurefni - Glerperlur, viðnámsaukandi korn og blöndur af hvoru tveggjaBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.11.20121.11.2012
ÍST EN 1463-1:2021Efni til vegmerkinga - Vegbólur með endurskini - Hluti 1: Nothæfiskröfur í upphaflegu ástandiBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 2.12.20222.12.2023
ÍST EN 12352:2006Umferðarstjórnbúnaður - Viðvörunar- og öryggisljósabúnaðurBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.2.20071.2.2008
ÍST EN 12368:2006Umferðarstjórnbúnaður - UmferðarljósBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.2.20071.2.2008
ÍST EN 12676-1:2000/ A1:2003Ljósskermar til nota á vegum - 1. hluti: Kröfur og eiginleikarBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.2.20041.2.2006
ÍST EN 12676-1:2000Anti-glare systems for roads - Part 1: Performance and characteristicsBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.2.20041.2.2006
ÍST EN 12899-2:2007Föst, lóðrétt umferðarmerki – Hluti 2: Upplýstir umferðarpollar (TTB)Búnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.1.20091.1.2013
ÍST EN 12899-3:2007Föst, lóðrétt umferðarmerki – Hluti 3: Aðgreiningarstaurar og endurskinsfletirBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.1.20091.1.2013
ÍST EN 12899-1:2007Föst, lóðrétt umferðarmerki – Hluti 1: Föst merkiBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.1.20091.1.2013
ÍST EN 12966-1:2005+A1:2009Lóðrétt vegaskilti - Skilti með breytanlegum skilaboðum - 1. hluti: VörustaðallBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.8.20101.8.2010
ÍST EN 14388:2005/AC:2008Hljóðtálmar vegna umferðar - EiginleikarBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.1.20091.1.2009
ÍST EN 14388:2005Hljóðtálmar vegna umferðar - EiginleikarBúnaður til vegagerðar (CEN/TC 226) 1.5.20061.5.2007