Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 877:1999/A1:2006/AC:2008 | Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatrygging | Steypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) | 1.1.2009 | 1.1.2009 |
ÍST EN 934-5:2007 | Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 5: Íblöndunarefni til nota í sprautusteypu - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merking | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 934-2:2009+A1:2012 | Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 2: Íblöndunarefni í steinsteypu - Skilgreiningar, kröfur, samræmisauðkenningar og merkingar | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.3.2013 | 1.9.2013 |
ÍST EN 934-3:2009+A1:2012 | Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 3: Íblöndunarefni í múr til nota í múrvirki - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merking | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.3.2013 | 1.9.2013 |
ÍST EN 934-4:2009 | Íblöndunarefni í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 4: Íblöndunarefni í þunnfljótandi múr til nota með forspennustrengjum - Skilgreiningar, kröfur, samræmi, auðkenning og merking | Steinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) | 1.3.2010 | 1.3.2011 |
ÍST EN 969:2009 | Rör, tengi og fylgihlutir úr seigu járni ásamt samsetningum þeirra til nota í gasleiðslur - Kröfur og prófunaraðferðir | Steypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 997:2012/AC:2012 | Salernisskálar og salerni með vatnslás | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.3.2013 | 1.3.2013 |
ÍST EN 997:2012 | Salernisskálar og salerni með vatnslás | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.12.2012 | 1.6.2013 |
ÍST EN 998-1:2016 | Kröfur til múrs til nota í múrvirki - Hluti 1: Pússningarmúr | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 11.8.2017 | 11.8.2018 |
ÍST EN 998-2:2016 | Kröfur til múrs til nota í múrvirki - Hluti 2: Múr til nota í múrvirki | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 11.8.2017 | 11.8.2018 |
ÍST EN 1013:2012+A1:2014 | Ljóshleypin, mótuð plastklæðning til innri og ytri nota á einföld þök, veggi og loft - Kröfur og prófunaraðferðir | Ósamfellt þakefni og efni fyrir til veggklæðningar (CEN/TC 128) | 10.7.2015 | 10.7.2016 |
ÍST EN 1020:2009 | Gaskyntir iðuhitarar til hitunar á rými annarsstaðar en á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er ekki meira en 300 kW, með viftu til að flytja brunaloft eða afgangsgas | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.8.2010 | 1.8.2011 |
ÍST EN 1036-2:2008 | Gler í byggingar – Speglar úr silfurhúðuðu flotgleri til nota innanhúss – Hluti 2: Samræmismat; vörustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 1051-2:2007 | Gler í byggingar – Glerhleðslusteinar og glergötusteinar – Hluti 2: Samræmismat/vörustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 1057:2006+A1:2010 | Kopar og koparblöndur – Heildregin kringlótt koparrör fyrir vatn og gas til nota í hreinlætis- og hitunarbúnaði | Kopar og koparblöndur (CEN/TC 133) | 1.12.2010 | 1.12.2010 |
ÍST EN 1090-1:2009+A1:2011 | Framkvæmd burðarvirkja úr stáli og áli – Hluti 1: Kröfur um samræmismat burðarvirkja | Framkvæmdir við mannvirki úr stáli og áli (CEN/TC 135) | 1.9.2012 | 1.7.2014 |
ÍST EN 1096-4:2018 | Gler í byggingar - Húðað gler - Hluti 4: Samræmismat / Framleiðslustaðall | Gler í byggingar (CEN/TC 129) | 20.3.2019 | 20.3.2020 |
ÍST EN 1123-1:1999 | Heitsinkhúðaðar múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1123-1:1999/ A1:2004 | Pípur og festingar fyrir heitsinkhúðaðar múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1124-1:1999 | Ryðfríar, múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |