Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 682:2002 | Gúmmíkenndar þéttingar - Efniskröfur varðandi þéttingar sem notaðar eru á rör og festingar sem flytja gas og kolvetnisvökva | Gúmmíkendar þéttingar fyrir samskeyti í lagnavinnu og lögnum (CEN/TC 208) | 10.1.2002 | 12.1.2003 |
ÍST EN 682:2002/A1:2005 | Gúmmíkenndar þéttingar - Efniskröfur varðandi þéttingar sem notaðar eru á rör og festingar sem flytja gas og kolvetnisvökva | Gúmmíkendar þéttingar fyrir samskeyti í lagnavinnu og lögnum (CEN/TC 208) | 1.7.2012 | 1.7.2012 |
ÍST EN 771-5:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina - 5. hluti: Sérframleiddir múrsteinar úr steinsteypu | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.6.2016 | 10.6.2017 |
ÍST EN 771-6:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina – Hluti 6: Múrsteinar úr náttúrulegum steini | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 8.4.2016 | 8.4.2017 |
ÍST EN 771-4:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina - 4. hluti: Múrsteinar úr hita- og þrýstihertri frauðsteypu | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.6.2016 | 10.6.2017 |
ÍST EN 771-2:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina - 2. hluti: Múrsteinar úr kalsíumsílikati | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.6.2016 | 10.6.2017 |
ÍST EN 771-1:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina - 1. hluti: Múrsteinar úr leir | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.6.2016 | 10.6.2017 |
ÍST EN 771-3:2011+A1:2015 | Kröfur til múrsteina - 3. hluti: Múrsteinar úr steinsteypu (þung og létt fylliefni) | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.6.2016 | 10.6.2017 |
ÍST EN 777-1:2009 | Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 1: Kerfi D - Öryggi | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.11.2009 | 1.11.2010 |
ÍST EN 777-2:2009 | Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 2: Kerfi E - Öryggi | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.11.2009 | 1.11.2010 |
ÍST EN 777-3:2009 | Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 3: Kerfi F - Öryggi | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.11.2009 | 1.11.2010 |
ÍST EN 777-4:2009 | Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 4: Kerfi H - Öryggi | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.11.2009 | 1.11.2010 |
ÍST EN 778:2009 | Gasknúnir iðuhitarar til hitunar á rými á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er meira en 70 kW, án viftu til að flytja brunaloft og/eða afgangsgas | Dreifð gashitun (CEN/TC 180) | 1.8.2010 | 1.8.2011 |
ÍST EN 845-2:2013+A1:2016 | Skilgreining stoðþátta fyrir múrvirki - Hluti 2: Burðarbitar yfir dyrum og gluggum | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.3.2017 | 10.3.2018 |
ÍST EN 845-3:2013+A1:2016 | Skilgreining stoðþátta fyrir múrvirki - Hluti 3: Fúgustyrking úr stálneti | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.3.2017 | 10.3.2018 |
ÍST EN 845-1:2013+A1:2016 | Skilgreining stoðþátta fyrir múrvirki - Hluti 1: Bindingar, togbönd, upphengi og knegti | Múrsteinar (CEN/TC 125) | 10.3.2017 | 10.3.2018 |
ÍST EN 858-1:2002 | Skiljukerfi fyrir létta vökva (t.d. olíu og bensín) - Hluti 1: Grunnatriði vöruhönnunar, skilvirkni og prófunar, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 858-1:2002/ A1:2004 | Skiljukerfi fyrir létta vökva (t.d. olíu og bensín) - Hluti 1: Grunnatriði vöruhönnunar, skilvirkni og prófunar, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 877:1999 | Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatrygging | Steypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) | 1.1.2008 | 9.1.2009 |
ÍST EN 877:1999/A1:2006 | Steypujárnsrör og -tengi, samskeyti og aukahlutir fyrir fráveitur - Kröfur, prófunaraðferðir og gæðatrygging | Steypujárnrör, tengi og samskeyti (CEN/TC 203) | 1.1.2008 | 9.1.2009 |