Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 9 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 416-1:2009Gaskyntir geislahitarar með einum brennara til að hengja upp - Hluti 1: ÖryggiDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.12.20091.12.2010
ÍST EN 621:2009Gaskyntir iðuhitarar til hitunar á rými annarsstaðar en á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er ekki meira en 300 kW, án viftu til að flytja brunaloft og/eða afgangsgasDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.8.20101.8.2011
ÍST EN 777-3:2009Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 3: Kerfi F - ÖryggiDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.11.20091.11.2010
ÍST EN 777-4:2009Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 4: Kerfi H - ÖryggiDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.11.20091.11.2010
ÍST EN 777-1:2009Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 1: Kerfi D - ÖryggiDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.11.20091.11.2010
ÍST EN 777-2:2009Gaskynt geislahitunarkerfi í loft, með mörgum brennurum, ekki til nota á heimilum - Hluti 2: Kerfi E - ÖryggiDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.11.20091.11.2010
ÍST EN 778:2009Gasknúnir iðuhitarar til hitunar á rými á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er meira en 70 kW, án viftu til að flytja brunaloft og/eða afgangsgasDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.8.20101.8.2011
ÍST EN 1020:2009Gaskyntir iðuhitarar til hitunar á rými annarsstaðar en á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er ekki meira en 300 kW, með viftu til að flytja brunaloft eða afgangsgasDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.8.20101.8.2011
ÍST EN 1319:2009Gasknúnir iðuhitarar til hitunar á rými á heimilum þar sem tilgreint varmainnstreymi er ekki meira en 70 kW, með viftuDreifð gashitun (CEN/TC 180) 1.10.20101.10.2011