Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 1168:2005+A3:2011 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Holplötur | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.7.2012 | 1.7.2013 |
ÍST EN 12737:2004+A1:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Rimlagólf fyrir búfé | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 12794:2005+A1:2007/AC:2008 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Grundunarstaurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.8.2009 | 1.8.2009 |
ÍST EN 12794:2005+A1:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Grundunarstaurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.2.2008 | 1.2.2009 |
ÍST EN 12839:2012 | Forsteyptar einingar úr steinsteypu - Einingar í girðingar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.10.2012 | 1.10.2013 |
ÍST EN 12843:2004 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Möstur og staurar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.9.2005 | 1.9.2007 |
ÍST EN 13224:2011 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Rifjaplötur | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.8.2012 | 1.8.2013 |
ÍST EN 13225:2013 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Bita- og súlueiningar í byggingar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |
ÍST EN 13693:2004+A1:2009 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Sérstakar þakeiningar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.5.2010 | 1.5.2011 |
ÍST EN 13747:2005+A2:2010 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Forsteyptar gólfaplötur | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2011 | 1.1.2011 |
ÍST EN 13748-1:2004/AC:2005 | Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhúss | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.6.2005 | 6.1.2005 |
ÍST EN 13748-2:2004 | Terrazzoflísar - 2. hluti: Terrazzoflísar til nota utanhúss | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.4.2005 | 1.4.2006 |
ÍST EN 13748-1:2004 | Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhúss | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.6.2005 | 10.1.2006 |
ÍST EN 13748-1:2004/A1:2005 | Terrazzoflísar - 1. hluti: Terrazzoflísar til nota innanhúss | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.4.2006 | 1.10.2006 |
ÍST EN 13978-1:2005 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Forsteyptir bílskúrar - 1. hluti: Kröfur varðandi benta bílskúra, heilsteypta eða úr steyptum einingum í rýmisstærð | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.3.2006 | 1.3.2008 |
ÍST EN 14843:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur - Stigar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14844:2006+A2:2011 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Holkassar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.9.2012 | 1.9.2013 |
ÍST EN 14991:2007 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Undirstöðueiningar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14992:2007+A1:2012 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Veggeiningar | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 1.4.2013 | 1.7.2013 |
ÍST EN 15037-4:2010+A1:2013 | Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum – Hluti 4: Þvereiningar úr þöndu pólýstýreni | Forsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) | 8.8.2014 | 8.8.2015 |