Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 572 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 15037-3:2009+A1:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 3: Þvereiningar úr leirForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20111.12.2012
ÍST EN 15037-2:2009+A1:2011Forsteyptar steinsteypuvörur - Bitagólf með þvereiningum - Hluti 2: Þvereiningar úr steinsteypuForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20111.12.2012
ÍST EN 15037-1:2008Forsteyptar steinsteypuvörur – Bitagólf með þvereiningum - Hluti 1: BitarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20101.1.2011
ÍST EN 15048-1:2007Óforspenntar boltasamstæður með burðarhlutverk – Hluti 1: Almennar kröfurFestingar (CEN/TC 185) 1.1.200810.1.2009
ÍST EN 15050:2007+A1:2012Forsteyptar steinsteypuvörur - BrúarefniForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.12.20121.12.2012
ÍST EN 15069:2008Öryggistengilokar fyrir málmleiðslur í gaskerfum til nota við tengingu heimilistækja sem nota gaseldsneytiHandstýrðir kúlulokar fyrir gas og að hluta til nota í öðrum tilgangi sem ekki eru ætlaðir til iðnaðarnota (CEN/TC 236) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 15088:2005Ál og álblöndur - Burðarhlutar í byggingarmannvirki - Tæknileg skilyrði fyrir skoðun og afhendingu Ál og álblöndur (CEN/TC 132) 1.10.20061.10.2007
ÍST EN 15102:2007+A1:2011Veggklæðningar til skrauts - Vörur í rúllu- og plötuformi Veggklæðningar (CEN/TC 99) 1.7.20121.7.2012
ÍST EN 15167-1:2006Malað, kornað brennsluofnagjall til nota í steinsteypu, múr og þunnfljótandi múr - Hluti 1: Skilgreiningar, eiginleikar og samræmisskilyrðiSteinsteypa og skyld efni (CEN/TC 104) 1.1.20081.1.2009
ÍST EN 15250:2007Kynditæki sem nota fast eldsneyti – Kröfur og prófunaraðferðirTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 1.1.20081.1.2010
ÍST EN 15258:2008Forsteyptar steinsteypuvörur -StoðveggeiningarForsteyptar steinsteypuvörur (CEN/TC 229) 1.1.20101.1.2011
ÍST EN 15274:2015Límefni til almennrar notkunar í burðarvirki - Kröfur og prófunaraðferðirLím (CEN/TC 193) 13.11.201513.11.2016
ÍST EN 15275:2015Límefni til nota í burðarvirkjum - Eiginleikar loftfirrtra límefna til nota við samása samsetningar í byggingum og mannvirkjumLím (CEN/TC 193) 13.11.201513.11.2016
ÍST EN 15283-2:2008+A1:2009Gifsplötur með trefjastyrkingu – Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðir – Hluti 2: GifstrefjaplöturGifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) 1.6.20101.6.2011
ÍST EN 15283-1:2008+A1:2009Gifsplötur með trefjastyrkingu – Skilgreiningar, kröfur og prófunaraðferðir – Hluti 1: Gifsplötur með mottustyrkingu –Gifs og vörur úr gifsi (CEN/TC 241) 1.6.20101.6.2011
ÍST EN 15285:2008/AC:2008Brotasteinn – Gólfflísaeiningar (til nota innan- og utandyra)Náttursteinn (CEN/TC 246) 1.1.20091.1.2009
ÍST EN 15285:2008Brotasteinn – Gólfflísaeiningar (til nota innan- og utandyra)Náttursteinn (CEN/TC 246) 1.1.20091.1.2010
ÍST EN 15286:2013Brotasteinn – Hellur og flísar til nota í veggklæðningar (innan- og utanhúss)Náttursteinn (CEN/TC 246) 8.8.20148.8.2015
ÍST EN 15322:2013Jarðbik og jarðbiksbindiefni – Flokkunarkerfi til nota við tilgreiningu á þunnbiki og þjálbikiJarðbiksbindiefni (CEN/TC 336) 8.8.20148.8.2015
ÍST EN 15368:2008+A1:2010Rakavirk bindiefni án burðarhlutverks - Skilgreining, eiginleikar og samræmisskilyrðiSement og byggingarlím (CEN/TC 51) 1.9.20111.9.2012