Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 10025-1:2004 | Heitvalsað efni úr óblönduðu byggingarstáli - 1. hluti: Almenn skilyrði fyrir afhendingu | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 10088-4:2009 | Ryðfrítt stál - Hluti 4: Tæknileg afhendingarskilyrði fyrir plötur/þynnur úr tæringarþolnu stáli til nota í byggingum | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.2.2010 | 1.2.2011 |
ÍST EN 10088-5:2009 | Ryðfrítt stál - Hluti 5: Tæknileg afhendingarskilyrði fyrir teina, stangir, vír og vörur úr björtu tæringarþolnu stáli til nota í byggingum | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 10210-1:2006 | Holar burðareiningar framleiddar við hita úr óblönduðu stáli og fínkorna stáli – Hluti 1: Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.2.2007 | 1.2.2008 |
ÍST EN 10219-1:2006 | Kaldformaðar soðnar holar burðareiningar úr óblönduðu stáli og fínkorna stáli – Hluti 1: Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.2.2007 | 1.2.2008 |
ÍST EN 10255:2004+A1:2007 | Rör úr óblönduðu stáli sem henta til rafsuðu og snittunar – Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 10311:2005 | Rörtengi til tengingar á stálrörum og festingar til nota við flutning á vatni og öðrum vatnsríkum vökvum | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.3.2006 | 1.3.2007 |
ÍST EN 10312:2002 | Soðin rör úr ryðfríu stáli til flutnings á vatnsríkum vökvum, svo sem neysluvatni - Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.4.2006 | 1.4.2007 |
ÍST EN 10312:2002/A1:2005 | Soðin rör úr ryðfríu stáli til flutnings á vatnsríkum vökvum, svo sem neysluvatni - Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.4.2006 | 1.4.2007 |
ÍST EN 10340:2007 | Steypujárnvörur til mannvirkjagerðar | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |
ÍST EN 10340:2007/AC:2008 | Steypujárnvörur til mannvirkjagerðar | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.1.2010 | 1.1.2010 |
ÍST EN 10343:2009 | Stál til snöggkælingar og temprunar til nota í byggingum - Tæknileg afhendingarskilyrði | ECISS - Evrópsk tækninefnd um stöðlun járns og stáls (CEN/TC 459) | 1.1.2010 | 1.1.2011 |