Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 997:2012 | Salernisskálar og salerni með vatnslás | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.12.2012 | 1.6.2013 |
ÍST EN 997:2012/AC:2012 | Salernisskálar og salerni með vatnslás | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.3.2013 | 1.3.2013 |
ÍST EN 12764:2004+A1:2008 | Hreinlætistæki - Tæknilýsing fyrir nuddpotta | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 13310:2003 | Eldhúsvaskar - Kröfur og prófunaraðferðir | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.2.2004 | 1.2.2006 |
ÍST EN 13407:2006 | Vegghengdar þvagskálar - Kröfur og prófunaraðferðir | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14055:2010 | Vatnskassar fyrir salernis- og þvagskálar | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.9.2011 | 1.9.2012 |
ÍST EN 14296:2005 | Hreinlætistæki - Þvottarennur | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.3.2006 | 1.3.2008 |
ÍST EN 14428:2004+A1:2008 | Sturtuskilrúm - Kröfur og prófunaraðferðir | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2009 | 1.1.2010 |
ÍST EN 14516:2006+A1:2010 | Baðkör til heimilisnota | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.5.2011 | 1.5.2012 |
ÍST EN 14527:2006+A1:2010 | Sturtubotnar til heimilisnota | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.5.2011 | 1.5.2012 |
ÍST EN 14528:2007 | Skolskálar - Kröfur og prófunaraðferðir | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |
ÍST EN 14688:2006 | Hreinlætistæki – Handlaugar – Kröfur og prófunaraðferðir | Hreinlætistæki (CEN/TC 163) | 1.1.2008 | 1.1.2009 |