Samhæfðir staðlar - Byggingarvörur

Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.

Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér

Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]

Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.

Fann 26 staðla
Forskeyti og númerHeitiTækninefndMá nota fráBer að nota eftir
ÍST EN 15821:2010Sánaofnar með fleiri en einum brennara sem kyntir eru með föstu eldsneyti - Kröfur og prófunaraðferðirTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 1.7.20111.7.2012
ÍST EN 16510-2-1:2022Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-1: RýmishitararTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 9.11.20239.11.2025
ÍST EN 16510-2-2:2022Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-2: Innfelld tæki, þ.m.t. opin eldstæðiTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 9.11.20239.11.2025
ÍST EN 16510-2-3:2022Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-3: EldavélarTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 9.11.20239.11.2025
ÍST EN 16510-2-4:2022Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-4: Frístandandi katlar - Nafnvarmagjöf allt að 50 kWTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 9.11.20239.11.2025
ÍST EN 16510-2-6:2022Tæki til heimilisnota sem brenna eldsneyti í föstu formi - Hluti 2-6: Rýmishitarar sem mataðir eru vélrænt með viðarkurli, innfeld tæki og eldavélarTæki fyrir fast eldsneyti í heimahúsi (CEN/TC 295) 9.11.20239.11.2025