Á þessari síðu er að finna opinbera birtingu á listum yfir samhæfða evrópska staðla um byggingarvörur, sem Staðlaráð hefur staðfest sem íslenska staðla, skv. 8. grein laga um byggingarvörur nr. 114/2014. Umrædd lög eru íslensk innleiðing á reglugerð ESB nr. 305/2011.
Staðlar sem heyra undir aðrar vörutilskipanir ESB eru ekki vaktaðir með sama hætti af Staðlaráði. Opinber birting staðla sem heyra undir aðrar tilskipanir en byggingarvörutilskipun er ekki á hendi Staðlaráðs. Vöktunin og uppfærslan fara fram ársfjórðungslega. Þeir sem hyggjast nota tiltekinn staðal og styðjast við þessa opinberu birtingu skyldu því ávallt ganga úr skugga um hvort einhverjar breytingar hafi orðið á staðlalistunum. Nýjustu upplýsingar um samhæfða evrópska staðla fyrir byggingarvörur er að finna hér
Fyrst sýnir listinn alla samhæfða staðla sem heyra undir reglugerð ESB nr. 305/2011 og lög um byggingarvörur nr. 114/2014 (engin leitarskilyrði). Til að finna samhæfða staðla um tiltekið efni er leitað eftir tækninefnd. Hægt er að slá inn númer staðals til að athuga hvort hann heyri undir umrædd lög og tilskipun. Dæmi: Til að athuga staðalinn ÍST EN 13282-1 er aðeins slegið inn heiltölunúmer hans: [13282]
Hægt er að fá nánari upplýsingar um fundinn staðal með því að smella á heiti hans.
Forskeyti og númer | Heiti | Tækninefnd | Má nota frá | Ber að nota eftir |
---|---|---|---|---|
ÍST EN 295-1:2013 | Frárennslislagnir úr brenndum leir - Hluti 1: Kröfur fyrir rör, festingar og tengi | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 295-4:2013 | Frárennslislagnir úr brenndum leir - Hluti 4: Kröfur fyrir breytistykki, tengibúnað og sveigjanleg tengi | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 295-5:2013 | Frárennslislagnir úr brenndum leir - Hluti 5: Kröfur fyrir götuð rör og tengi | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 295-6:2013 | Frárennslislagnir úr brenndum leir - Hluti 6: Kröfur fyrir samsetningarhluta mannopa og eftirlitsbrunna | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 295-7:2013 | Frárennslislagnir úr brenndum leir - Hluti 7: Kröfur fyrir rör og samsetningar til nota við línuborun | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.11.2013 | 1.11.2014 |
ÍST EN 588-2:2001 | Trefjasteypurör fyrir niðurföll og ræsi - 2. hluti: Mannop og eftirlitsbrunnar | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 10.1.2002 | 10.1.2003 |
ÍST EN 858-1:2002 | Skiljukerfi fyrir létta vökva (t.d. olíu og bensín) - Hluti 1: Grunnatriði vöruhönnunar, skilvirkni og prófunar, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 858-1:2002/ A1:2004 | Skiljukerfi fyrir létta vökva (t.d. olíu og bensín) - Hluti 1: Grunnatriði vöruhönnunar, skilvirkni og prófunar, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 1123-1:1999 | Heitsinkhúðaðar múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1123-1:1999/ A1:2004 | Pípur og festingar fyrir heitsinkhúðaðar múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1124-1:1999/ A1:2004 | Ryðfríar, múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1124-1:1999 | Ryðfríar, múffutengdar stálpípur með saum og tengistykki fyrir fráveitur - 1. hluti: Kröfur, prófanir og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.6.2005 | 6.1.2006 |
ÍST EN 1433:2002 | Frárennslisrör á svæðum sem ætluð eru akandi og gangandi vegfarendum - Flokkun, hönnun og prófunarkröfur, merking og mat á samræmi | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.8.2003 | 1.8.2004 |
ÍST EN 1433:2002/A1:2005 | Frárennslisrör á svæðum sem ætluð eru akandi og gangandi vegfarendum - Flokkun, hönnun og prófunarkröfur, merking og mat á samræmi | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.1.2006 | 1.1.2006 |
ÍST EN 1825-1:2004/AC:2006 | Olíuskiljur - 1. hluti: Grunnatriði hönnunar, skilvirkni og prófun, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.1.2007 | 1.1.2007 |
ÍST EN 1825-1:2004 | Olíuskiljur - 1. hluti: Grunnatriði hönnunar, skilvirkni og prófun, merking og gæðaeftirlit | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.9.2005 | 1.9.2006 |
ÍST EN 1916:2002 | Rör og fylgihlutir úr steinsteypu, óbent, með stáltrefjum og með bendistáli | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.8.2003 | 23.11.2004 |
ÍST EN 1916:2002/AC:2008 | Rör og fylgihlutir úr steinsteypu, óbent, með stáltrefjum og með bendistáli | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.1.2009 | 1.1.2009 |
ÍST EN 1917:2002/AC:2008 | Mannop og eftirlitsbrunnar úr steinsteypu, óbent, með stáltrefjum og með bendistáli | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.1.2009 | 1.1.2009 |
ÍST EN 1917:2002 | Mannop og eftirlitsbrunnar úr steinsteypu, óbent, með stáltrefjum og með bendistáli | Fráveitutækni (CEN/TC 165) | 1.8.2003 | 23.11.2004 |